Verð með vsk.
LUCIO er notalegur miðpunktur fyrir heimilið, spegill og ljós í einu formfögru verki sem breytir ljósi í stemningu.
Hann er innblásinn af arninum, en hannaður fyrir nútímann til að draga fram það besta í rýminu sem þú átt nú þegar.
Svartur matt lakkaður LUCIO. Formfagur spegill með hlýrri LED-baklýsingu sem gefur rýminu dýpt, hlýju og notalegan miðpunkt.
Sami LUCIO, sama ljósið og sama stemningin. Studio eintak úr okkar eigin kynningar- og myndefnisvinnu, yfirfarið.
Mátaðu LUCIO heima áður en þú ákveður þig. Á heimamátunarsíðunni finnurðu upplýsingar um þjónustuna og hvernig þú getur óskað eftir heimsókn.
Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu. Hafðu samband vegna sendinga utan Íslands.