LUCIO er spegill og ljós í einu formfögru verki, hannaður til að skapa hlýju, dýpt og stemningu.
Hugmyndin sækir innblástur í arininn og það hlutverk sem hann hefur lengi gegnt sem náttúruleg miðja heimilisins. LUCIO túlkar þá hugsun fyrir nútímann með samspili forms, speglunar og hlýrrar baklýsingar.
Á daginn endurspegla speglarnir birtu, liti og hreyfingu úr umhverfinu. Þegar rökkva tekur kemur baklýsingin fram og gefur verkinu aðra ásýnd og rýminu hlýrra yfirbragð.
Hugmyndin að LUCIO kviknaði í London árið 1999, þegar Siggi Anton var í hönnunarnámi.
Innblásturinn kom eftir heimsókn á klúbbinn Home, þar sem ljós, speglar og form unnu saman og sköpuðu einstaka stemningu.
Úr varð einföld spurning: Væri hægt að taka þessa stemningu með sér heim?
Sú hugmynd varð að LUCIO.
Frá upphafi hefur markmiðið verið að skapa verk sem færir rýminu meiri hlýju, dýpt og stemningu án þess að kalla á stórar breytingar.