0

Karfan þín er tóm

Prófa heima

LUCIO er spegill og ljós í einu formfögru verki sem breytir ljósi í stemningu.

Mátaðu heima
Stutt heimsókn þar sem við mátum LUCIO við rýmið og erum fljót að koma auga á staði þar sem LUCIO gæti passað. Þú sérð fljótt hvernig baklýsingin virkar á rýmið og hvernig umhverfið birtist í speglunum.

Ef þú ákveður að kaupa getum við gengið frá kaupum á staðnum. Hjálpum einnig til við uppsetningu.

Heimamátun í boði á höfuðborgarsvæðinu.

Smelltu hér til að hafa samband eða fylltu út formið hér fyrir neðan
Opnar Messenger.


Algengar spurningar

---

Hvar passar LUCIO?+

LUCIO er 108 × 121 cm og nýtur sín best á vegg sem er um tveir metrar á breidd eða breiðari. Hann fer vel yfir skenk, á gangi, í borðstofu, stofu eða forstofu, í stigaopi og fleiri stöðum. Við aðstoðum þig við að finna staðsetningu, hægt er að panta heimamátun á höfuðborgarsvæðinu.

Er LUCIO meira en bara spegill?+

Já. LUCIO er spegill og hlýr ljósgjafi í einu formfögru verki sem skapar notalega miðju í rýminu. Á daginn speglar hann umhverfið; á kvöldin skapar innbyggða baklýsingin hlýju og ró.

Er uppsetningin flókin?+

Nei. LUCIO er hengdur upp með tveimur 6 mm skrúfum og má festa á gifs-, timbur- eða steinveggi. Tengja má baklýsinguna við nálæga innstungu eða tengja við dós í vegg fyrir aftan LUCIO. Við aðstoðum við uppsetningu í Reykjavík og nágrenni.

Hvað kostar LUCIO og hvernig get ég greitt?+

Þær útgáfur sem nú eru í boði kosta frá 295.000 til 379.000 kr., eftir áferð og útfærslu. Hægt er að greiða með Netgíró, Pei, Visa, Euro og PayPal. Einnig er boðið upp á raðgreiðslur og greiðsludreifingu.

Get ég séð hvernig LUCIO kemur út heima hjá mér áður en ég kaupi?+

Já. Þú getur skoðað LUCIO í þrívídd á vefnum okkar og við getum einnig fundið tíma fyrir skoðun eða heimamátun. Þrívíddarskrár, þar á meðal BIM- og Revit-skrár, eru einnig í boði fyrir arkitekta og innanhússhönnuði.


LUCIO Spegillinn séður í heild framan frá í dagsbirtu