LUCIO er notalegur miðpunktur fyrir heimilið, spegill og ljós í einu formfögru verki sem breytir ljósi í stemningu.
Hann er innblásinn af arninum, en hannaður fyrir nútímann. Ekki til að breyta heimilinu í eitthvað annað, heldur til að draga fram það besta í rýminu sem þú átt nú þegar.
Spegill, form og hlý baklýsing vinna saman í einu verki og skapa hlýlegan og fágaðan miðpunkt fyrir nútímaheimilið.
Með LUCIO færðu þessa eftirsóttu stemningu heima. Tilfinninguna sem maður finnur í vel hönnuðum hótelrýmum, fallega lýstum setustofum og skapandi vinnustofum.
Munurinn er að nú verður þessi stemning hluti af þínu eigin heimili.
Þú þarft ekki að fara neitt.
Bókaðu heimamátun í Reykjavík og nágrenni. Við komum heim til þín, skoðum vegginn og finnum hvar LUCIO nýtur sín best í rýminu.
Þú þarft ekki að mæla allt eða vera búin/n að ákveða nákvæma staðsetningu.
LUCIO er ekki bara spegill á vegg. Spegilfletirnir, formið og hlý baklýsingin vinna saman og gefa rýminu meiri dýpt, mýkri birtu og skýrari miðpunkt.
Þú þarft ekki að mála, skipta út húsgögnum eða endurhanna heimilið. LUCIO er ein sterk viðbót sem getur breytt því hvernig rýmið tekur á móti þér.
Á björtum dögum fangar LUCIO birtu, speglun og hreyfingu í rýminu. Þegar dagsbirtan dofnar verður baklýsingin sýnilegri og gefur herberginu mýkri og notalegri tón.
Ásýndin breytist eftir því hvar setið er hverju sinni. Þetta er lifandi verk sem skapar dýpt og kyrrð, dálítið eins og þegar við kveikjum upp í arninum og finnum hlýjuna færast inn í húsið. Látlaust, áhrifaríkt og tímalaust.
LUCIO er 108 cm á breidd og 121 cm á hæð. Hann situr um 25 mm frá veggnum svo baklýsingin fái rými til að dreifast fallega á vegginn í kring.
Veggur sem er um tveir metrar eða breiðari hentar yfirleitt mjög vel. Hann getur líka virkað á minni veggjum ef hlutföllin í rýminu eru góð.
LUCIO nýtur sín vel yfir skenk, í stofu, við enda borðstofu, á gangi, í anddyri eða í stigahúsi. Best er að setja hann þar sem hann fær að verða náttúrulegur miðpunktur í rýminu.
Gott viðmið er að hafa neðri brúnina í um 110 cm hæð frá gólfi, eða um 28 cm fyrir ofan skenk. Rétt hæð fer þó alltaf eftir veggnum, húsgögnunum og sjónlínum í rýminu.
Það er einmitt ástæðan fyrir heimamátun. Við skoðum rýmið með þér, metum hlutföllin og finnum staðinn þar sem LUCIO nýtur sín best.
Þetta gerir ákvörðunina einfaldari, rólegri og miklu öruggari.
LUCIO notar hlýja hvíta LED baklýsingu sem gefur mjúkan bjarma á vegginn í kring. Ljósið er ekki hugsað sem vinnuljós, heldur sem stemningsljós sem gerir rýmið hlýrra og meira aðlaðandi.
Núverandi útgáfa er ekki með RGB litum, flóknum snjallkerfum eða ljósabrellum. Ljósið er valið til að henta fallegum heimilum, kvöldstemningu og rólegri birtu.
LUCIO er samsettur úr 12 spegilflötum og stærsti spegillinn nýtist vel í daglegri notkun.
LUCIO festist á vegg með tveimur 6 mm skrúfum. Uppsetningin er einföld og við getum aðstoðað með ráðleggingar eða uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu.
Ef þú vilt tengja LUCIO beint í falda rafmagnsdós er best að fá rafvirkja. Ef hann er tengdur í venjulega innstungu með snúru þarf yfirleitt enga sérstaka rafmagnsvinnu.
LUCIO má setja á timburveggi, gifsveggi og steypta veggi, svo lengi sem notaðar eru réttar festingar fyrir viðkomandi vegg.
Speglana má þrífa varlega með mjúkum örtrefjaklút og vatni. Forðastu sterk hreinsiefni á rammann.
Já. Heimamátun er besta leiðin til að sjá stærðina, hlutföllin og ljósið í réttu samhengi. Við komum með LUCIO heim til þín og skoðum hvar hann nýtur sín best.
Já. Hægt er að skoða LUCIO í 3D til að átta sig betur á formi, dýpt og stærð, sjá myndasafn á vörusíðu.
LUCIO hefur verið sýndur á DesignMarch í Reykjavík og á SaloneSatellite í Mílanó árin 2007 og 2017. Hann var einnig tilnefndur til Íslensku lýsingarverðlaunanna árið 2018. LUCIO hefur einnig fengið umfjöllun í fjölda vandaðra blaða og tímarita.
Eigendur tala oft um að LUCIO sé eitt það fyrsta sem gestir taka eftir. Margir nefna líka hlýjuna frá baklýsingunni á kvöldin og hvernig hann heldur áfram að virka fallega í rýminu árum saman.
Eigum til örfá eintök úr eldri sendingu, tökum svo niður nöfn á lista fyrir næstu sendingu. Skráðu þig hér til að vera á listanum.
Já. Frí heimsending er í boði á höfuðborgarsvæðinu. Við getum einnig veitt ráðleggingar um staðsetningu og séð um uppsetningu.
Þú getur bókað heimamátun, sent skilaboð í gegnum síðuna, haft samband á Facebook eða hringt í síma 694 2020.
Við komum heim til þín, skoðum vegginn og finnum hvar LUCIO nýtur sín best í rýminu.
Þú þarft ekki að mæla allt eða ákveða staðsetningu fyrirfram.