0

Karfan þín er tóm

Almennt:

Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Above ehf, lucio.is / luciomirror.com.

Um notkun vefsíðu og vefverslunar Above ehf gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun Above ehf samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.

Above ehf, kt. 610408-1680, er staðsett að Ásakór 15. Símanúmer er 6942020.

Above ehf áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.

Verð:

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

Above ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.

Vörur til einkanota:

Vörurnar í vefverslun Above ehf eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum Above ehf án tilskilinna leyfa. Above ehf áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.

Nákvæmni upplýsinga:

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

Greiðsluleiðir:

Hægt er að inna greiðslu af hendi í vefverslun með greiðslukorti. Above ehf er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt. 

Lög og varnarþing:

Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjaness. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.