





LUCIO er notalegur miðpunktur fyrir heimilið, spegill og ljós í einu formfögru verki sem breytir ljósi í stemningu.
Hann er innblásinn af arninum, en hannaður fyrir nútímann til að draga fram það besta í rýminu sem þú átt nú þegar.
379.000 kr
Svartur matt lakkaður LUCIO. Formfagur spegill með hlýrri LED-baklýsingu sem gefur rýminu dýpt, hlýju og notalegan miðpunkt. Tilbúinn til afhendingar á höfuðborgarsvæðinu.
295.000 kr
Sami LUCIO, sama ljósið og sama stemningin. Studio eintak úr okkar eigin kynningar- og myndefnisvinnu, yfirfarið og tilbúið til afhendingar á höfuðborgarsvæðinu
Bókaðu heimamátun í Reykjavík og nágrenni. Við komum heim til þín, skoðum vegginn og finnum hvar LUCIO nýtur sín best.
Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu. Hafðu samband vegna sendinga utan Íslands.
Þegar þessi eintök eru farin tökum við niður nöfn fyrir næstu sendingu af LUCIO.
Hér eru nokkur atriði sem fólk spyr oftast um áður en það fær sér LUCIO.
LUCIO er 108 × 121 cm og nýtur sín best á vegg sem er um tveir metrar á breidd eða meira. Hann passar vel yfir skenk, á gangi, í borðstofu, stofu eða forstofu. Við getum aðstoðað þig við að meta staðsetningu og hlutföll áður en þú pantar.
Já. Í LUCIO verður til samspil spegils, forms og baklýsingar í einu verki, sem gefur rýminu dýpt, hlýju og miðju. Hugmyndin sækir líka í sama aðdráttarafl og arinninn hafði áður á heimilinu: staðinn sem fólk vildi safnast að, líða vel hjá og dvelja lengur. Með LUCIO færðu þessa eftirsóttu stemningu heim: notalega upplifun sem maður finnur í vel hönnuðum hótelrýmum, fallega lýstum setustofum og skapandi vinnustofum. Munurinn er að nú verður þessi stemning hluti af þínu eigin heimili. Þú þarft ekki að fara neitt.
Nei. LUCIO er festur upp með tveimur 6 mm skrúfum og hægt er að setja hann á gips-, tré- eða steinveggi. Rafmagn er tengt í dós eða leitt í næstu innstungu. Við aðstoðum við uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu.
Verðið er á bilinu 295.000 til 379.000 kr. Í boði eru greiðsluleiðir eins og Netgíró, Pei, Visa, Euro og PayPal, ásamt möguleika á raðgreiðslum.