Máta heima
Mátaðu LUCIO heima
Í stuttri heimsókn sérðu hvar LUCIO spegillinn gæti helst passað og hvernig speglarnir og baklýsingin virka á rýmið.






Verð með vsk.
LUCIO er notalegur miðpunktur fyrir heimilið, spegill og ljós í einu formfögru verki sem breytir ljósi í stemningu.
Hann er innblásinn af arninum, en hannaður fyrir nútímann til að draga fram það besta í rýminu sem þú átt nú þegar.
Svartur matt lakkaður LUCIO. Formfagur spegill með hlýrri LED-baklýsingu sem gefur rýminu dýpt, hlýju og notalegan miðpunkt.
Sami LUCIO, sama ljósið og sama stemningin. Studio eintak úr okkar eigin kynningar- og myndefnisvinnu, yfirfarið.
Mátaðu LUCIO heima áður en þú ákveður þig. Á heimamátunarsíðunni finnurðu upplýsingar um þjónustuna og hvernig þú getur óskað eftir heimsókn.
Heimsending án endurgjalds á höfuðborgarsvæðinu. Ef þú vilt fá LUCIO sendan utan höfuðborgarsvæðisins, sendu þá inn heimilisfang og við reiknum sendingarkostnað.
Hér eru nokkur atriði sem fólk spyrst oft fyrir um.
LUCIO er 108 × 121 cm og nýtur sín best á vegg sem er um tveir metrar á breidd eða meira. Hann passar vel yfir skenk, á gangi, í borðstofu, stofu eða forstofu. Við getum aðstoðað þig við að meta staðsetningu og hlutföll áður en þú pantar.
Já. Í LUCIO verður til samspil spegils, forms og baklýsingar í einu verki, sem gefur rýminu dýpt, hlýju og miðju. Hugmyndin sækir líka í sama aðdráttarafl og arinninn hafði áður á heimilinu: staðinn sem fólk vildi safnast að, líða vel hjá og dvelja lengur. Með LUCIO færðu þessa eftirsóttu stemningu heim: notalega upplifun sem maður finnur í vel hönnuðum hótelrýmum, fallega lýstum setustofum og skapandi vinnustofum. Munurinn er að nú verður þessi stemning hluti af þínu eigin heimili.
Nei. LUCIO er festur upp með tveimur 6 mm skrúfum og hægt er að setja hann á gips-, tré- eða steinveggi. Rafmagn er tengt í dós eða leitt í næstu innstungu. Við aðstoðum við uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu.
Verðið er á bilinu 295.000 til 379.000 kr. Í boði eru greiðsluleiðir eins og Netgíró, Pei, Visa, Euro og PayPal, ásamt möguleika á raðgreiðslum.

Við bjóðum upp á heimamátun á höfuðborgarsvæðinu. Í stuttri heimsókn sérðu hvar LUCIO spegillinn gæti helst passað og hvernig speglarnir og baklýsingin virka á rýmið.
Heimamátun án endurgjalds á höfuðborgarsvæðinu.
MÁTA Á VEGG
Veldu AR-mátun eða sendu okkur mynd af veggnum. Báðar leiðir gefa þér skýrari tilfinningu fyrir stærð og staðsetningu.
Myndirnar verða aðeins notaðar til að svara þér og verða ekki birtar án leyfis.